Danska fyrirtækið ID Line er öflugur samstarfsaðili okkar í Vinnuföt og hefur samstarfið þróast á afar jákvæðan hátt undanfarin ár. ID Line er mjög sterkt merki í „profile“ fatnaði, með mikið úrval af t-bolum, háskólabolum, pólóbolum, flíspeysum, jökkum og skyrtum, svo eitthvað sé nefnt.
Nú á dögunum heimsóttu okkur forsvarsmenn þessa fyrirtækis þar sem farið var yfir nýjan bækling fyrirtækisins fyrir árið 2007. Óhætt er að segja að margir spennandi hlutir séu að gerast í vöruþróun fyrirtækisins, en alls eru um 30 ný phentermine vörunúmer í bæklingnum. Auk þess var ákveðið að þýða bæklinginn í heild sinni yfir á íslensku, en sú útgáfa er væntanleg um mánaðamótin janúar/febrúar. Nýjungarnar verða einnig kynntar hér á síðunni um leið og þær koma á lager hjá okkur.