Skip to main content

Við erum óðum að komast í vorgírinn og mikið af nýjungum eru væntanlegar. Í apríl koma nýjar og glæsilegar vinnubuxur á lager hjá okkur, en þær kallast Soul og eru frá okkar helsta samstarfsaðila, Björnkläder. Við látum fylgja myndir af þessari nýjung, en þetta eru léttar, þægilegar og slitsterkar buxur með teygjuefni sem tryggir hámarks þægindi og sveigjanleika.

Við bjóðum alla velkomna til okkar í Bæjarlind 1-3. Hér er mikið úrval af fatnaði og öryggisvörum fyrir allan iðnað.