Skip to main content
Fréttir

Vinnuföt óskar öllum farsældar á nýju ári!

By janúar 10, 2017maí 11th, 2017No Comments

Við erum komin á fullt eftir hátíðarnar og horfum bjartsýn fram á veginn. Við áttum áfram gott samstarf við okkar viðskiptavini og samstarfsaðila á árinu 2016 og hlökkum til að halda því áfram.

Fyrir hátíðarnar létum við gott af okkur leiða, með því að styðja við Pieta Ísland með veglegu framlagi. Pieta Ísland var stofnað í byrjun árs 2016 og vinnur að stofnun nýs úrræðis á Íslandi fyrir einstaklinga í sjálfsvígshugleiðingum og þá sem stunda sjálfsskaða, auk stuðnings við aðstandendur. Fyrirhugað er að opna fyrsta Pieta húsið á Íslandi síðla árs 2017 og er undirbúningur kominn á gott skrið. Að úrræðinu standa samtökin Hugarafl og Lifa, samtök aðstandenda eftir sjálfsvíg, ásamt öflugum hópi einstaklinga.

Það verður ýmislegt á döfinni hjá okkur árið 2017. Á næstu vikum munum við ráðast í endurbætur á heimasíðu okkar til að einfalda aðgengi viðskiptavina að upplýsingum, sem í sumum tilfellum er nokkuð djúpt á hér á síðunni. Við ætlum líka að vera dugleg að kynna til sögunnar nýjungar frá okkar samstarfsaðilum. Fyrst og fremst ætlum við þó að halda áfram að eiga góð samskipti og gera okkar besta í að þjónusta viðskiptavini okkar eins vel og okkur er unnt.